DSC04296.jpg

Einvera/Solitude

Í verkinu Einvera/Solitude fjalla ég um ferðalög á staði þar sem tíminn virðist stopp. Þetta eru staðir sem fæstir taka eftir, staðir sem eru ekki með mörg þúsund like á instagram og rútufylli af ferðamönnum fylla hvern dag. Smæð mannsins í stóra samhenginu og tilfinningin að finnast maður vera einn í heiminum um stundarsakir þar til maður fer heim aftur og heimurinn fyllist af fólki, hreyfingu og klukkan slær á ný.